Laugardagur til Lukku

Hæ,

Verð að segja það að þessi dagur fer ekki á topp tíu listann yfir "most productive days"...hvernig í ósköpunum getur maður snarað þessu á íslensku?

Ég fór alveg viljandi óvart á smá djamm í gær og það var bara ferlega gaman. Við byrjuðum á að hittast hérna hjá mér. Elskulegir samlandar mínir sem ég hef kynnst á þessu ári kíkti í glas, músik og gleði hérna. Þetta voru Heiða, Ragnhildur og Máni.

Við kíktum svo á októberfest hjá nokkrum íslendingum sem leigðu sal og fengu Ísl-Fjónsku hljómsveitina Hildigunnur Skordal.

Ég fór svona þokkalega skikkanlega allt of seint heim og hef legið í dag faðmandi postulínsaltarið.

Ummæli

Heiðagella sagði…
Vona að altarið hafi ekki beðið varanlegan skaða af hamförum gærdagsins hjá þér.... :o)
En þynnka godt fortjent... því þetta var Helv. skemmtilegt..

Gúdd lökk vræting túdeij....

HottíSpottí
Nafnlaus sagði…
Hehe alveg í þínum anda Arnar :) svo er líka voðalega gott að faðma postulínið af og til.....
Kefló kveðja

Vinsælar færslur